|
|
29.04.2008 16:31:56 / annaal
Það er sko heldur betur margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast. En aðalmálið er að sumarið er komið í DK. Það er bara sól og sumarylur hér á hverjum degi sem er algjör snilld. Sumarskapið komið og allir svaka glaðir!!
Núna er maí að fara að byrja og ég er búin að bíða lengi eftir þeim mánuði. Heldur betur mikið að gerast. Upptalning:
- Byrjar á að ma og pa og amma koma til mín 1.maí til 7.maí, styttist heldur betur í það. Er að farasta úr spenningi.
- Næst kemur svo Kolla til mín í millilendingu til Tyrklands. Hún kemur 9.maí og gistir eina nótt.
- 20.maí fer ég svo til Noregs til Hildar sys og Tomas hennar heittelskaða. Verð þar í heila viku á svakalegu Eurovision-festivali. Get ekki beðið!!
- Kem til Köben aftur 27.maí en það er ansi stutt stopp því 29.maí fer ég svo á klakann til að verða viðstödd giftingu hjá elskulegum vinum mínum Sveinlaugu og Davíði, þann 31.maí. Get sko heldur ekki beðið eftir því! Það verður skemmtilegt.
Nóg að gera í maí!!
Svo er lokaritgerðin mín loksins komin á ágætt skrið. Rosa spennandi og skemmtilegt efni sem ég er að skrifa um. Náði loksins sambandi við yfirkennarann minn og hann var svona svakalega sáttur við efnið mitt. Fínt að fá gott feedback!! Segi ykkur betur frá efninu mínu seinna. Það er allavega um eitthvað sem er að gerast á Íslandi og ætti að snerta alla sem þykir vænt um fallega landið okkar. Þá sérstaklega menningu, þekkingu og alþjóðlega markaðssetningu á okkar verðmæta mannauði, sem við eigum svo mikið af. Skettilegt!!!
More later! lots of luvs,
Anna
»
31.03.2008 17:51:51 / annaal
... hvað ég læt annað fólk fara í taugarnar á mér. Ég veit að ég á ekki að gera það, en samt bara gerist það. Held líka að ég sé alveg einstaklega hörundsár, hef alltaf verið það frá því ég var smákrakki. Tek allt rosa nærri mér og set miklu dýpri merkingu í allt sem fólk gerir eða segir. Ekki það að ég sé svona svakalega dramatísk (á það reyndar alveg til, alveg óviljandi samt) ég er bara svona! Minn helsti galli er kenna sjálfri mér um allt sem gerist í kringum mig, ég næ einhvern veginn alltaf að snúa því þannig upp að ég er miðpunkturinn og ástæða allra vandamála sem koma upp í kringum mig. Segi kannski ekki alveg að ég kenni mér um það ef vinkonur mínar rífast við kærastana sína en æji þið fattið mig.... Þetta er bara svo pirrandi og ósanngjarnt gagnvart þeim sem ég er kannski að pirra mig yfir og þau hafa ekki hugmynd um það af því þau setja ekki sömu merkingu í það sem þau sögðu eða gerðu og ég. Er ég svona svakalega self-centered?
Allavega þá er ég komin aftur út. Þetta var erfiðasti túrinn minn heim, eða þá meina ég erfiðast að kveðja þegar ég fór út aftur. Það lagaðist samt fljótt. Gott að koma aftur á Brigadevej. Enda held ég að það hafi ekki verið það að mig langi að vera á Íslandi endilega, mér líður mjög vel hérna í Köben. Æji maður getur kannski ekki alltaf sett puttann á það af hverju manni líður svona og svona. Ég er eldhress núna allavega!!
Það var rosa gaman heima. Nokkrir punktar yfir hvað ég gerði: - Byrjaði á því að hitta Sveinkuna mína og skoða allt brúðardótið hennar, jii hvað ég hlakka til 31.maí - Fór á "Bærinn breiðir úr sér" með elskulegum vinkonum mínum, gvuð hvað það er yndislega skemmtileg leiksýning. Sátum svo að sötri og spjalli sem endaði með smá tjútti, rosa gaman - Tók góðan rúntudag með elsku bestu Ingibjörgu minni og svo kaffiboð með "tengdó" sem gaf mér geggjað, perluprjónað sjal - Tók "sunnudag" með Öldu og Önnu Ósk, like the good old days - Rúntaði um Reykjanesbæ (Hafnir, völlurinn, Innri njarðvík) með bestu ömmuna - Djammaði í bænum með Önnu Ósk og Stebbu ofl. Við Anna vægast sagt þræddum staðina sem endaði með brjáluðum dansi á Kofanum - Fór í bíó með fallegu, kasóléttu, Brynju minni - vorum svo stoppaðar af löggunni sem hélt örugglega að við værum dópsalar á BMW með dökkar rúður. Hann varð ansi vandræðalegur þegar hann sá hana kasólétta og við með sprite og bland í poka. Hann lýsti svo með vasaljósinu sínu í aftursætið og eina sem hann fann þar var barnabílstóll og barna-strigaskór.... - Átti yndislegan páskadag í faðmi fjölskyldunnar, sunnudags-ís-rúntur, hamborgarahryggur og hvítvínsspjall - Skellti mér á tjúttið með sætu frænku minni henni Guðrúnu, Elvu og Söndru - Alveg hætt að þekkja fólk á djamminu, stórt merki um að ég sé að verða gömul og hallærisleg - Fór svo í 6 heimsóknir daginn áður en ég fór út aftur og náði að knúsa alla bless...
Yndisleg ferð og kannski þess vegna sem það var smá kökkur að fara aftur út. En auðvitað er lífið á klakanum ekki alltaf svona viðburðaríkt.
Vá þetta blogg er orðið soldið langt!!! Segi ykkur frá glæpnum sem ég var vitni af í nótt í næsta bloggi.
Luvs....
»
14.03.2008 10:29:25 / annaal
Var rétt í þessu að klóra mér í hausnum fyrir framan alla í bekknum. Það minnti mig á grunnskóla árin mín. Þegar ég var grunnskólakrakki þá klóraði ég mér aldrei í hausnum fyrir framan aðra og sérstaklega ekki í skólanum. Maður fór kannski heilu dagana alveg að drepast úr kláða á einum stað í hausnum án þess að klóra sér. Ástæðan, jú ef manni klæjar í hausnum þá er maður með lús. Þetta voru allir krakkar með á hreinu. Ef maður klóraði sér í hausnum fyrir framan krakkana í bekknum þá yrði maður stimplaður lúsablesi! Mikið rosalega var notalegt að geta loksins klórað sér almennilega í hausnum á almannafæri. Og ég er ekki með lús!! Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.
Ísland á mánudaginn, jibbý.....
Update: Var að spjalla við bekkjarsystur mína og fattaði þá að ég er í síðustu kennslustundinni minn í lífinu! Eruði að trúa þessu? Síðasti fyrirlesturinn sem ég sit eftir 20 ára langa skólagöngu.... Shitt ég er ekki frá því að ég er klökk! Það var þá ekki seinna vænna en að leyfa sér að klóra sér í hausnum! Það tók 20 ár.
»
07.03.2008 19:37:42 / annaal
Er að henda á mig lufsunum og smella maskaranum á því ég á deit í kvöld! Ekki við karlkynið, heldur góðu góðu vinkonur mínar Birgittu og Helgu sætu sem er komin yfir frá Odense í heimsókn. Karlkynið bíður betri tíma!
Við ætlum að snæða dýrindis máltíð á áströlskum stað hér í borg og ég hlakka mikið til að fá mér krókódíl. Mest hlakka ég þó til að knúsa hana Helgu mína. Það verður stuð!
Síðustu dagar hafa verið myrkir! Átti yndislega helgi með Hildi sys og Tomas hennar heittelskaða í Malmö. Einhvern veginn einkennast okkar hittingar af því að ég enda ekki bara í saknaðarmóki, heldur líka einhvers konar veseni. Hið almáttuga vill undirstrika hvað ég sakna systur minnar með aukaverkunum. Update: Noregsferð, feb 2007 - 21 tíma ferðalag heim til köben þar sem ég var heimilislaus. Noregsferð, maí 2007 - vaknaði ælandi daginn sem heimferð var og eyddi flugferðunum báðum heim inná klósetti vélanna, ælandi og var mjög aum og veik þegar heim var komið.
Malmö var yndisleg en kveðjustundin var veik og þegar ég var komin á brigadevej hentist ég uppí rúm og lá þar það sem eftir var vikunnar. Henti tölvunni, óvart, í gólfið. Hafði ekki orku í neitt, átti engar verkjatöflur, hálstöflur eða VATN. En ég er svo svakalegur gikkur á vatn að ég drekk það ekki úr krananum hér í kóngsins.
Fékk vægt taugaáfall í nótt, gat ekki sofnað af því þetta blessaða lokaverkefni mitt verður erfið fæðing. Hef samt ákveðið að taka málin í mínar hendur og taka ákvarðanir uppá mínar eigin spýtur. Guð hjálpi mér, sendið mér orku!!
Jæja ætla að henda á mig kinnalitnum og skella mér niðrí bæ og róa taugarnar. Fá mér jafnvel einn strawberry daquiry!
Luvs.....
»
04.03.2008 01:24:49 / annaal
Shittt...... Var rétt í þessu að hrasa með tölvuna mína og er í fokkings brjáluðu sjokki. Ég lá sem sagt uppí rúmi að leika mér í tölvunni en svo var hún að verða battlaus svo ég ætlaði að standa upp til að skella henni á borðið og í samband. Þráðlausa netið er búið að vera fokkt up síðustu vikur svo ég þarf að nota snúru fyrir netið. Ég flæktist í snúrunni og hrasaði en náði að forða mér frá því að detta en fleygði í staðinn tölvunni all svakalega harkalega í gólfið. Úfff..... það eru svört strik í parketinu eftir tölvuna hún lenti svo harkalega. Skjárinn klofnaðist upp og ég sá bara eitthvað spjald skjótast úr tölvunni. Ég hugsði bara fokk nú er ég búin að eyðileggja tölvuna, sem er alveg týpískt fyrir mína heppni á þessum tíma árs. Ég skellti henni í sambandi og kveikti á henni og alveg ótrúlegt að hún virkar alveg eðlilega. Spjaldið sem fór úr er bara svona plaststykki sem maður getur tekið úr til að skella netkorti eða einhverju álíka í samband þannig að það var ekkert alvarlegt, og svo náði ég að smella skjánum saman aftur og það sér ekkert á honum núna. Eina sem er að webcamið sem er í skjánum er frekar óskýrt en það er svo sem í lagi af því ég nota aldrei webcam. Það virðist líka eins og stopparinn sem kemur í veg fyrir að skjárinn fari of langt aftur sé eitthvað brotinn af því ég get opnað hana alveg uppá gát en það skiptir heldur engu máli. Vona allavega að það sé ekkert annað að. Spurning hvort ég ætti kannski að láta kíkja á hana til öryggis svo ég lendi ekki í einhverjum vandræðum með hana þegar ég er lengra komin með ritgerðina.
Úff.... shjæsen er ennþá að jafna mig!!!
»
29.02.2008 19:13:51 / annaal
Nú sit ég hérna heima og bíð eftir því að Hildur sys og Tomas lendi á köben flugvelli svo ég geti trattast til þeirra og hitt þau. Þar hoppum við svo uppí næstu lest til Malmö!
Við ætlum að eyða helginni saman í Malmö og gvuð hvað það verður yndislegt. Hlakka rosa til. Á meðan ég bíð er ég að bjóra mig upp og þvo þvott, rosa gaman.
Blogcentral er loksins búin að uppfæra fídusana sína og það er kominn möguleiki á að skella myndum inná síðuna sína. Ætla reyndar að skoða það betur seinna, nenni ekki að setja inn myndir núna. Þannig að þið verðið að fylgjast með, kannski detta inn eins og ein mynd eða tvær á næstu dögum.
Ingibjörgin mín er flutt heim. Þar sem að ég var í langri bloggpásu á síðasta ári þá hef ég ekkert bloggað um okkar skemmtilega tímabil hérna úti. Ingibjörg sem sagt flutti hingað út í haust en þar sem það er farið að kenna námið hennar í Keflavík ákvað kellan að flytja aftur heim og skella sér í námið þar. Þessi yndisfagra pía hélt í mér lífinu síðastliðið hálfa ár þannig að það er mikill missir að hún sé farin heim. Sakna hennar rooosa mikið...
Svo hef ég skemmtilegar fréttir að færa, einkum fyrir mig. Ég er búin að bóka flugfar heim um páskana. Ætla aðeins að skella mér heim í frí og pústa aðeins og ná mér í íslenska orku. Fyrstu mánuðir ársins eru ekki minn tími. Lífið er ekki stanslaust partý í Kaupmannahöfn þó svo að fólkið heima fái stjörnur í augun og vatn í munninn við tilhugsunina að búa hérna.
Bloggandinn virðist af einhverjum hluta vera kominn yfir mig og ég finn hjá mér þörf til að láta vita af mér af og til hérna. Heimsóknum hefur að vísu lítið fjölgað, kannski af því ég hrópaði of oft úlfur, úlfur á tímabili og hef ekki unnið traustið til baka. Vonandi gefiði mér einn síðasta séns svona rétt síðustu dönsku tímana mína.
Bestu kveðjur,
Anna
»
08.02.2008 10:33:34 / annaal
Þegar maður situr í tíma og kennarinn babblar um eitthvað sem mér finnst ekki viðeigandi fyrir fagið (Not what i signed up for), þá er maður eiginlega króaður útí horn til að blogga! Ég er nú reyndar bara að blogga fyrir sjálfan mig þessa dagana þar sem ég er ennþá að vinna aftur traust lesenda minna vegna leti minnar í þessu blogrugli. Síðan ég kom aftur út er ég bara búin að vera í rannsóknarvinnu fyrir lokaritgerðina mína. Er búin að liggja soldið í einhverri holu sem mér fannst á tímabili ekki hægt að komast uppúr en nú er ég farin að sjá smá ljósglætu þegar ég horfi upp. Ég sannfæri sjálfan mig bara á meðan um það að ákvörðunarhjallinn um efni sé sá stærsti og eftir hann fari hlutirnir að gerast. Ég verð nú að velja vandlega þar sem þetta verður litla barnið mitt næstu 7 mánuði!! Að sjálfsögðu er ég núna aðeins búin að lyfta mér upp líka síðan ég kom. Fékk loksins að sjá fésið á honum Christiani mínum sem er búin að vera í hálft ár í Peking í skiptinámi. Hann kom til mín í smá drykk sem endaði náttla í svaka fjöri á hommastað... *Æji ohh langði að setja mynd með en maður verður víst fyrst að uploada þeim á netið til að geta sett þær með í færslur. Vinn í því fyrir næsta blogg.* Svo í kvöld ætlum við nokkrar að fara saman á ítalskan stað á Nörrebro að borða, sem er víst alveg svakalega kósý og góður, og svo vill svo heppilega til að hann er alveg við uppáhalds kokteilbarinn okkar, Mexibar, þannig að leiðin liggur allsvakalegalíklega þangað eftir matinn. Umm fæ vatn í munninn við að skrifa þetta. Svo verður eitthvað "dívast" frameftir nóttu!! En meira ætla ég ekki að babbla í bili. Best að geyma eitthvað þangað til seinna þegar ég er búin að fá fleiri lesendur. Ble ble
»
01.02.2008 22:27:41 / annaal
Jiii ég ætlaði varla að komast hingað inn af því ég mundi ekki slóðina!! Já þið hélduð að ég væri hætt..... Langaði bara að segja hæ og segja að i´m chillin as hell í köben og lífið er ljúft.... Ég veit að það eru einhverjir sem óskuðu eftir að ég myndi blogga meira, þó svo að það sé ansi stutt eftir af ljúfa danska lífinu! Auðvitað segir maður, já mér líður drulluvel hérna í köben, af því það er það sem allir segja á blogginu sínu. Sénsinn að maður færi eitthvað að flagga því ef maður væri eitthvað ekki upplagður... Ég veit ekki með það að skella myndum hérna inn af því þær eru flestar frekar svartar hahaha....kannski færi ég mig yfir á 123 svo ég geti sett inn læst albúm. Annars líður mér bara þokkalega. Síðasta önnin gengin í garð og the pressure is on! En ég fæ svo langan tíma til að skrifa lokaritgerðina mína þannig að ég klára aldrei fyrr en í lok ágúst í fyrsta lagi, sem er næs. Sakna ykkar í botn elskurnar... Guðrún frænka og Sveinlaug elsku besta músin mín fá aðalskveðjur, miss you soooo....
»
20.04.2007 08:06:50 / annaal
Bara smá update á lífinu hér í Köben. Ég veit að ég er latur
bloggari, en það er greinilega ekkert sem ég get gert til að breyta
því!
Það er búið að vera brjálæðislega mikið að gera hjá mér
undanfarið og eiginlega bara alveg frá því ég kom út eftir jól. Ég
hef varla tíma til að setjast niður og ná andanum. ÉG ætla bara að
gera svona punkta upptalningu:
- Bibba og Árni komu
- Flutningar
- Próf
- Brjáluð verkefnavinna með hóp dauðans
- Tölvan ónýt, búin að kaupa nýja
- Fór á tónleika með Fall out boy
- Sandra kíktí nokkra daga
- Alda kom í 8 daga
- Fór í munnlegt próf
- Brynja kom yfir eina helgi
- Rósa María er flutt út
- Endalaus verkefnavinna
- Fer aftur til Hildar sys 9.maí
- Komin með íslenskan heimasíma, kostar sama og að hringja
innanlands í mig 
- Númerið er 496-0311 , Call me!!
- Man ekki meir í bili
En endilega látið vita af ykkur elskurnar mínar. Ég sakna ykkar
og langar að heyra frá ykkur.
»
28.02.2007 00:00:16 / annaal
Vávává.... brjálæðislega mikið búið að gerast síðan síðast.
Þið vitið að ég elska ykkur alltaf jafn mikið þó ég bloggi
sjaldan. Undanfarnar vikur eru bara búnar að vera rosalega busy og
skrítnar. Ég átti að flytja inní íbúð 15.febrúar og útúr minni sama
dag. Nokkrum dögum áður fékk ég bréf frá skrifstofunni um að ég
gæti ekki flutt inn í hina fyrr en 1.mars. Það gaf mér um 4 daga
til að redda húsnæði fyrir allt dótið mitt í geymslu og gistingu
fyrir mig í 2 vikur. En það reddaðist allt, sem betur fer. Björg
mín Áskels var svo góð að leyfa mér að nota geymsluna sína og leyfa
mér að búa hjá sér í þennan tíma. Ég gat komið öllu dótinu mínu
fyrir í geymslunni hjá henni og það fer rosalega vel um mig hjá
henni. Reyndar ákvað ég að skella mér bara í heimsókn til Hildar
sys í Noregi í 5 daga og slaka aðeins á eftir allt þetta stress og
alla þessa vitleysu. Alveg útgrátin og ma og pa alveg að deyja úr
áhyggjum heima greyin. En þetta fór allt vel samt. Það var rosa
gaman í Noregi, Andrea vinkona Hildar var hjá henni á sama tíma og
við skemmtum okkur konunglega. Hildur og Tomas voru líka að kaupa
sér æðislega íbúð, vá hvað hún er flott. Það var æði að vera hjá
þeim. Keila, pool, píla, út að borða, djamm og endalaust sing-star.
Og já endalaust nammi og snakk át hehehe. Þetta var æði. Reyndar
var gleðin fljót að hverfa þegar ég lenti í þvílíkum seinkunum og
algjöru veseni á leiðinni heim. Í stuttu máli þá lagði ég af stað
heiman frá Hildi klukkan hálf níu um morguninn og var komin uppí
rúm heima hjá Björgu klukkan hálf fjögur um nóttina. Það var nú
stór kökkur í hálsinum á litla vælukjóanum. Sendi mömmu alveg
sérstök skilaboð þegar ég var lent að ég væri komin, en hún mætti
ekki hringja af því ég væri alveg að fara að grenja hahahaha....
Æji ég er auli, I know. Erfitt að vera lítið hjarta í útlöndum,
sérstaklega þegar maður er einn.
Vá ég skrifa þetta allt í einni klessu. Er bara rétt að láta
ykkur vita af mér elskurnar mínar.
Á morgun koma svo Bibban mín og Árni spússi hennar. Ég hlakka
ekkert smá til. Get eiginlega ekki sofið fyrir spenningi, Jibbý....
Og á fimmtudaginn fæ ég svo loksins íbúðina. ÉG er reyndar við öllu
versta búin miðað við það sem á undan er gengið. En vonandi verður
þetta í lagi.
Bið bara að heilsa ykkur í bili. Reyni að skrifa um Bibbu
heimsóknina og nýja húsnæðið fljótlega.
»
01.02.2007 12:09:03 / annaal
Va hvad thid hljotid ad vera komin med oged af sidustu færslu.
Ansi langt sidan sidast. En eg er sem sagt komin aftur ut og thad
er bara finasta fint. Er buin ad vera ansi busy thessar rumlega 2
vikur sem eg er buin ad vera her.
Er ad spa i ad gera bara svona punktalista yfir thad helsta sem
eg er buin ad gera:
* Komin med ibud, jibby.... flyt um midjan feb
* Var rænd af ansvitans thjofi, hann stal veskinu nanast
ur høndunum a mer
* For i klippingu sem endadi i svo svakalegu spjalli og
hvitvinssøtri ad eg var a hargreidslustofunni i 9 tima. Birgitta er
bara svo yndislega skemmtileg...
* Baud Gunny i steik og bernaise, rosa dugleg eg ad elda
eitthvad for a change
* For i afmælismatarbod til heidurs Helgu i bodi Birgittu,
skøtuselur og islenskt lambalæri. Umm nammi namm....
* For i matarbod til Ingibjargar og Tota (LOKSINS) i fahjitas.
Umm nammi namm...
* For i matarbod til Bjargar Askels med fullt af skemmtilegu
folki i ofnbakadann kjukling og alls konar dyrindis medlæti. Umm
nammi namm....
* Er ordin 300 kilo af øllu thessu ati
* Buin ad fara a tjuttid nokkrum sinnum med yndislegu folki
* Buin ad tjutta med Christiani minum
* Byrjud i skolanum. Uff eg sem hlakkadi svo til ad byrja!
* Horfdi a æsispennandi handboltaleik, Island-Danmørk med
nokkrum bekkjarsystrum. Va, eg helt eg myndi lata lifid tharna
undir lokin.....
* Buin ad hanga alltof mikid a Cafe-retro ad spjallast og
netast
And that's about it! Allavega buid ad vera rosa gaman svona
fyrstu 2 vikurnar.
OG gamanid er sko ekkert ad hætta. Er ad fara i bekkjarparty og
a skolabarinn i kvøld, catch up with the classmates u know. Ohh
thau eru svo yndisleg.
Og svo a laugardaginn ætlum vid Birgitta ad hoppa upp i lest
rett eftir hadegi og skella okkur i stelpuafmæli til Helgu i
Odense. Thad verdur litla fjørid thar!
En er thetta ekki bara fint i bili? Allavega eitthvad sma.
Luv u guys.... sem virdist aldrei gefast upp a mer ;-*
»
19.12.2006 12:06:04 / annaal
Jibby, tha er eg komin i jolafri! Sidast profid gekk mjøg vel,
fekk niu. Thannig ad einkunnirnar minar fyrstu ønnina eru thrjar
attur og ein nia! Nokkud gott. Annars hef eg ekki meira ad segja i
bili. Se ykkur eftir 2 daga elskurnar minar.
Eg veit ad sumum finnst thetta leidinlegt en eg akvad samt ad
setja thetta inn!
1. Fullt nafn:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta
út?
»
13.12.2006 12:42:50 / annaal
Ég kenni því að ég sé ekki með netið heima hjá mér algjörlega um
afhverju ég blogga svona sjaldan. Ef ég væri með netið heima væri
ég alltaf við tölvuna og myndi blogga þegar ég ætti dauðan tíma, en
undanfarið hef ég bara verið við tölvuna þegar ég er á fullu að
læra og gef mér engann tíma til að blogga.
Annars er allt gott að frétta. Bara eitt próf eftir, á
þriðjudaginn næsta, og svo er ég komin í jólafrí. Næs! Það þýðir
líka að það eru bra 8 DAGAR í að ég komi heim. Trúiði þessu? Að það
sé heil önn liðin! Að ég sé búin að vera í burtu í 4 mánuði! Þetta
er ótrúlegur andskoti! Og ég er bara nokkuð stolt af sjálfri mér.
Mér finnst ég búin að standa mig nokkuð vel í þessari eldraun.
Fyrstu mánuðirnir eru alltaf erfiðastir held ég! Svo verður
örugglega líka erfitt að fara aftur út eftir jólin.
Skólinn er búin að ganga fínt. Tvær áttur komnar í hús og
einhverjar einkunnir á leiðinni sem eru vonandi jafn góðar eða
betri.
Ohh hvað ég hlakka til að koma heim og knúsa alla! Ég lendi
eitthvað um miðnætti fimmtudagskvöldið 21.des og mér þykir líklegt
að það heilli mig að kíkja aðeins á pödduna. Bibban mín allra besta
ætlar að vera svo væn að kíkja með mér í einn eða tvo 
Vonandi næ ég nú einni færslu áður en ég fer heim. Hlakka svooo
mikið til að sjá ykkur elskurnar!!!!
»
01.12.2006 13:32:29 / annaal
ÉG fékk svo rosalega fallega færslu á blogginu hennar Rósu
minnar a afmælisdaginn minn og auðvitað ætla ég að endurgjalda það.
En Rósa mín, þú verður samt að afsaka að kveðjan komi einum degi of
seint því ég var ekkert í skólanum í gær og því netlaus.

Þú ert algjör perla ástin og ég sakna þín svo
rosalega mikið. Það var svo gott að fá þig hingað út í smátíma og
fá að knúsa þig og tala við þig. Þú ert svo einstök manneskja sem
vilt allt fyrir mann gera. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við
höfum átt saman, hvort sem er á pöddunni, kojufylleríin okkar ófáu,
roadtripið góða, stundirnar í vinnunni og endalaust fleira.
Takk fyrir að vera þú :-*
»
29.11.2006 11:36:14 / annaal
Jæja gott folk. Takk ædislega fyrir
allar afmæliskvedjurnar, hvort sem thær voru simleidis,
sms eda a blogginu. Luv u all :-* Thid erud yndisleg og algjørlega
astædan fyrir thvi ad eg er su manneskja sem eg er. Takid thad
til ykkar sem eigid thad. Eg sakna ykkar rosalega mikid og
hlakka mikid til ad knusa ykkur øll thegar eg kem heim.
Mamma min kom hingad ut um helgina med konum ur
vinnunni og thad var yndislegt ad hafa hana hja mer i nokkra
daga. Eg nadi ad eyda godum tima med henni og thad er soldid
skritid ad hun se farin aftur. En thad reddast thvi systir min
kemur til min og knusar mig a føstudaginn. Hun ætlar ad
vera herna yfir helgina. Ohh hvad eg hlakka til.
Svo styttist lika alltaf enntha meira i thad ad eg komi heim,
bara 3 vikur. Thad verdur fljott ad lida og tha hef
eg manud til ad hitta ykkur øll sem mig langar ad hitta.
Eg ætla lika ad skjota thvi svona inn ad eg er komin med
myspace. Er thad ekki eina vitid i dag? Slodin er einfaldlega
www.myspace.com/annaalberts !
Nuna undanfarid hefur pinulitid reynt a mig i pælingum minum
hverjir eru i raun og veru vinir minir. Eg er alls ekki ad tala um
ad folk sem eg tala ekki vid upp a hvern einasta dag seu ekki vinir
minir, heldur folk sem kann ad meta thad sem eg geri fyrir thad og
hverjir eg hugsa ad myndu gera thad sama fyrir mig. Eg veit ad eg a
heilan helling af vinkonum og eg myndi aldrei rada theim upp eftir
einhverjum stødlum. Eg hef bara undanfarid verid ad hugsa soldid um
thad sem eg hef gert fyrir folk i gegnum tidina sem eg mun kannski
ekki fa endurgoldid ef eg myndi ætlast til thess sama. Ekki taka
thessu samt thannig ad mer finnist leidinlegt ad gera gott
fyrir vini mina, thvert a moti, thid megid alveg vita ad
eg myndi gera allt i heiminum fyrir ykkur sem standid mer
næst. Eg veit thetta hljomar dramatiskt en thad er alls ekki
svoleidis i huganum minum, eg er ekki bitur eda sar ut i neinn eda
eg er ekki ad ætlast til thess ad allt sem eg geri fyrir folk fari
i einhvern banka thar sem eg get tekid ut thegar mer hentar. Thetta
fær mig bara adeins til ad hugsa hvort eg geri meira fyrir folk sem
a thad ekki skilid en folkid sem mer thykir virkilega vænst um. Eg
tharf bara adeins ad forgangsrada rett og passa ad folk hafi ekki
thannig ahrif a mig ad eg taki øll heimsins vandamal theirra inna
mig og sit svo uppi med thau sjalf. Nuna stend eg a akvednum
timamotum (new country, new school, new people) thar sem eg rekst
mikid a veggi sem virdist i fyrstu vera erfitt ad komast yfir og
ekki nog med thad heldur virdist eg vera med storan bakpoka sem eg
tharf ad hafa a bakinu lika thegar eg klifra yfir thessa veggi. Eg
er ekki ad segja ad mer lidi illa, langt thvi fra, en stundum væri
samt gott ad fa sma "push" til ad komast yfir thessa veggi. Eg veit
eg hljoma mjøg sentimental og thad er alls ekki ætlunin en hef eg
samt ekki rett a ad vera sentimental stundum eins og allir adrir?
Thad tharf enginn ad taka thetta serstaklega til sin, eg bara sakna
ykkar svo ofsalega mikid!
Svo thegar eg les thetta yfir se eg lika einn galla sem eg tharf
ad hrista af mer. Eg tharf alltaf ad afsaka hugsanir minar!
Ørugglega i annarri hverri setningu afsaka eg thennan pistil.
Fyrasta skrefid kemur her, eg skammast min ekki neitt fyrir ad vera
su manneskja sem eg er. Eg kann vel vid tha personu sem eg er
ordin. Eg lit a sjalfan mig sem goda manneskju sem vil øllum vel.
Ykkar alit skiptir ekki mali, u get what u see and if u don't like
it so be it. Eins og segir i laginu, eg er bara eins og eg er! Bara
kannski pinu confused thessa dagana.
Adal malid er samt ad eg sakna ykkar og eg elska ykkur. Og eg
hlakka til ad eyda tima med ykkur um jolin.
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|